Stelpuhringur Akureyrardætra og Útisport á morgun þriðjudag.

Hjólaviðburður sem haldin er fyrst og fremst sem hjólaskemmtun fyrir konur, markmiðið er að fá konur til að taka þátt og skemmta sér saman hvort sem þær ætla að keppast við aðrar konur, sjálfa sig eða tímann.

Keppnisgjald er 4500 krónur, innifalið í verði er drykkur, súpa, brauð og kaffi eftir keppni, frítt í sundlaugina á Hrafnagil í boði Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar eftir verðaunaafhendingu. Fullt af útdráttarvinningum og einnig fá allir þátttakendur gjafapoka.
Hjólaður verður innri Eyjafjarðarhringurinn, 31.8 km, ræsing er frá Brúnum í suður og hjólað er inn að austan. Á leiðinni er 5,7 km malarkafli og vert er að minna keppendur að fara varlega þar yfir, en aðstoðarmaður verður þar ef það springur dekk eða þörf er á aðstoð við annað.
Flokkar eru
-Götuhjól
-Rafmagnshjól
Tímasetningar (með fyrirvara um breytingar):
Kl. 17:00 - Afhending númera til 17:30 (Brúnir)
Kl. 18:00 - Ræsing við Brúnir
Kl. 19:00 - Veitingar í boði fyrir keppendur
Kl. 20:00 - Verðlaunaafhending
Kl. 20:30 - Sundlaugin opnar fyrir keppendur
Skráning fer fram hér: https://netskraning.is/stelpuhringur/
Til að staðfesta þátttöku þarf að greiða keppnisgjaldið.
Greiðsluupplýsingar:
565-14-405004
Kt 281267-5319
4500 kr

 


Athugasemdir

Nýjast