Stelpuhelgi að Melum

Íslandsfrumsýning verður þegar Leikfélag Hörgdæla sýnir Stelpuhelgi
Íslandsfrumsýning verður þegar Leikfélag Hörgdæla sýnir Stelpuhelgi

Leikfélag Hörgdæla er um þessar mundir að hefja æfingar á leikritinu Stelpuhelgi eftir Karen Schaeffer í þýðingu Harðar Sigurðarsonar.  Um verður að ræða Íslandsfrumsýningu á verkinu.

Leikritið Stelpuhelgi er stórskemmtilegur farsi þar sem vinkonurnar Meg, Carol, Dot ásamt Ellie dóttir Megs hittast í bústaðnum hjá Dot. Markmið helgarinnar er að hafa gaman, skiptast á sögum, drekka áfengi og fara yfir næstu bók í bókaklúbbnum, lausar við alla karlmenn. Það fer svo að flækjast þegar gengur á áfengið og vinkonurnar eru allar búnar að bjóða hver sínum karli í eftirpartý þvert á hugmyndir gestgjafans.

Leikstjóri sýningarinnar verður Gunnar Björn Guðmundsson en hann er margreyndur leikstjóri með yfir 30 leiksýningar, 4 áramótaskaup og kvikmyndir eins og Astrópía og Amma Hófí á bakinu.

Stefnt er á frumsýningu 2. mars og miðasala fer af stað á næstu dögum.


Athugasemdir

Nýjast