Stefna í geðheilbrigðismálum samþykkt á Alþingi

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Mynd: ME
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Mynd: ME

Alþingi samþykkti í dag tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. Í stefnunni felst framtíðarsýn og markmið um bætta geðheilbrigðisþjónustu eru skilgreind. Heildarkostnaður aðgerða við framkvæmd stefnunnar er áætlaður rúmar 560 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynnigu frá heilbrigðisráðuneytinu.

„Meginmarkmið stefnunnar er að stuðla að aukinni vellíðan og betri geðheilsu landsmanna og virkari samfélagsþátttöku einstaklinga sem glíma við geðraskanir til lengri eða skemmri tíma, óháð búsetu þeirra. Í því skyni eru sett fram undirmarkmið sem fela í sér að þjónusta við einstaklinga sé samþætt og samfelld, að uppeldisskilyrði barna stuðli að vellíðan þeirra og að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli geðheilsu,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Meðal þess sem lagt til, til að ná fram þessum markmiðum er að lögfest verði skylda um að ríki og sveitarfélög geri með sér samkomulag um hvernig þau muni sinna sameiginlega þjónustu við fólk með geðvanda. Einnig er lagt til að framboð sálfræðiþjónustu í heilsugæslu verði aukið, sett verði á laggirnar geðheilsuteymi, barna- og unglingageðdeild Landspítala verði styrkt og einnig að stuðningur við börn sem eiga foreldra með geðvanda verði aukinn. Loks er tillaga um að byggja upp þekkingu starfsfólks á hjúkrunarheimilum vegna þjónustu við íbúa með geðraskanir.

„Aðgerðir varðandi bætt uppeldisskilyrði barna byggjast einkum á forvörnum. Lagt er til m.a. að teymi verði stofnað til að sinna ráðgjöf og styðja foreldra og fjölskyldur, stuðlað verði að markvissri geðrækt í skólum, skimað verði fyrir kvíða og þunglyndi meðal grunnskólabarna og viðeigandi meðferð veitt eftir þörfum og leitað verði árangursríkra meðferða til að draga úr sjálfsvígum meðal ungmenna,“ segir í tilkynningunni.

Í tillögunni er lögð áhersla á aðgerðir til að draga úr fordómum og mismunun í garð fólks með geðraskanir.  Þar má nefna gerð leiðbeininga fyrir þá sem fjalla um mál fólks með geðvanda o.fl.

Heildarkostnaður er áætlaður rúmar 560 milljónir króna. Þar vega þyngst geðheilsuteymin, kostnaður vegna ráðninga sálfræðinga á heilsugæslustöðvar og efling þjónustu barna- og unglingageðdeildar LSH.

„Mikill ávinningur fyrir alla“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir það mikinn ávinning fyrir alla að nú liggi fyrir skýr stefna í þessum mikilvæga málaflokki: „Nú höfum við eitthvað fast í hendi til að byggja á. Það er í þágu þeirra sem þurfa þjónustu, það er gagnlegt fyrir þjónustuveitendur og aðra þá sem vilja fylgja málum eftir og veita stjórnvöldum aðhald og það er mikilvægt fyrir þá sem fara með yfirstjórn þessara mála sem hafa þá góðan grunn til að byggja á ákvarðanir sínar.“ Ráðherra fagnar því jafnframt hve góð samstaða hefur verið um málið á Alþingi, bæði í velferðarnefnd og meðal þingmanna en þingsályktunartillagan var samþykkt einróma með öllum greiddum atkvæðum. /epe.

Nýjast