Fljótlega eftir fjármálahrunið 2008 var hrundið í gang stórfelldum sparnaðaraðgerðum íheilbrigðiskerfinu á landsvísu. Heilbrigðisstarfsfólk tók þátt í þeim aðgerðum af heilum hug, lagði á sig aukna vinnubyrði, lét sér lynda ýmislegt sem áður þótti ekki ásættanlegt, allt til þess að hjálpa heilbrigðiskerfinu okkar eftir hrunið hræðilega. Aðstæður starfsfólks og sjúklinga versnuðu hægt og bítandi, tækjabúnaður var ekki endurnýjaður sem skyldi og flótti heilbrigðisstarfsfólks fór að verða áberandi.
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) er annað stærsta sjúkrahús landsins og varasjúkrahús LS H . Hjúkrunarfræðingar þar eru um 30% af starfsfólki og telja þeir tæp 130 stöðugildi skv. ársskýrslu SAk frá árinu 2014. Óhætt er að segja að mikilvægi stéttarinnar er gríðarlegt og algjörlega ómissandi fyrir starfsemi sjúkrahússins. Á bráðamóttöku SAk eru starfandi 19 hjúkrunarfræðingar og er meðal starfsaldur þeirra á deildinni 1215 ár. Þar af er einn sérfræðingur í bráðahjúkrun, fjórir bráðahjúkrunarfræðingar með viðbótamenntun, ellefu
hjúkrunarfræðingar hafa réttindi til sjúkraflutninga (EMTBasic) ásamt fjölda annarra starfsmanna sem búa yfir mikilvægri sérþekkingu.
Síðustu 5 árin hefur orðið 30% aukning á komum á bráðamóttökuna og sinnir deildin mjög breiðum hópi sjúklinga. Álag og ábyrgð þeirra hjúkrunarfræðinga sem vinna á bráðamóttöku SAk er því gríðarlegt, ekki einungis berum við ábyrgð á okkar daglegu störfum á deildinni, heldur berum við ábyrgð á að öll neyðaraðstoð berist á réttar deildar innan stofnunarinnar, við svörum síma vaktlæknis heilsugæslunnar á nóttunni og veitum ráðleggingar, við berum ábyrgð á að rétt útkallsboðun sé til staðar í stórslysum á Norðurlandi og virkjun
greiningarsveita ásamt mikilvægri fræðslu og utanumhaldi varðandi móttöku
fjöláverkasjúklinga, endurlífgun og fleira.
Einnig bera hjúkrunarfræðingar ábyrgð á ýmsum
sérhæfðum verkefnum innan deildarinnar svo sem áfallhjálp, neyðarmóttöku þolenda
kynferðisofbeldis og svo mætti lengi telja. Í þessi störf gengur ekki hver sem er og hefur
langur tími og mikil vinna farið í að mynda þessa sterku heild þar sem hver er öðrum
mikilvægari. Það er því ljóst að íslenska heilbrigðiskerfið mun missa frá sér gríðarleg
sérhæfingu ef kemur til uppsagna hjúkrunarfræðinga hér eins og annarsstaðar .
Mikill metnaður er í gangi innan veggja sjúkrahússins á Akureyri og hefur gífurlegri vinnu,
tíma og fjármunum verið eytt með það að markmiði að sjúkrahúsið hljóti alþjóðlega
gæðavottun fyrst íslenskra sjúkrahúsa.
Bráðamóttakan hefur notið góðs af þessari gæðavottun og hefur það meðal annars hefur birst í algjörri umbyltingu á aðstöðu bráðamóttökunnar en
nú á næstu vikum mun ný bráðamóttaka verða tekin í fulla notkun. En hvað er steinsteypa og
góðar hugmyndir ef ekki er starfsfólk til að vinna? Það er staðreyndin sem SAk stendur
frammi fyrir ef fram heldur sem horfir og enginn árangur verður í kjarabaráttu
hjúkrunarfræðinga við ríkið. Hjúkrunarfræðingar hafa setið á hakanum í allt of mörg ár þar
sem viðkvæðið frá ríkisstjórnum undanfarinna ára hefur iðulega verið að ekki sé rétti tíminn
og við beðin um að bíða meðan verið er að laga stöðuna og byggja upp heilbrigðiskerfið. Nú
hefur biðin gert það að verkum að við höfum dregist allt of langt aftur úr og nú telur ríkið það
vera of kostnaðarsamt að jafna það skarð sem myndast hefur milli okkar og annarra
háskólamenntaðra stétta sem vinna hjá ríkinu. Getur það talist eðlilegt að efnahagur landsins
standi og falli með launahækkun/launaleiðréttingu einnar stéttar?
Það er ekki létt verk að standa frammi fyrir því að íhuga af fullri alvöru og í kjölfarið ef til
vill að segja upp starfi sínu, starfinu sem við menntuðum okkur til og starfinu sem við höfum
lagt allt okkar í til að hægt sé að veita skjólstæðingum okkar bestu þjónustu sem völ er á
hverju sinni. En höfum það í huga að þessi barátta er ekki einungis háð fyrir okkur sjálf
heldur einnig fyrir hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar svo þeir sjái sér fært um að starfa á
Íslandi við viðunandi kjör.
Við hvetjum stjórnendur og yfirlækna á SAk að láta rödd sína heyrast og berjast með okkur
fyrir áframhaldandi þróun og fagmennsku á öllu sjúkrahúsinu sem engan vegin er hægt að
halda uppi ef frá hverfur mannauðurinn sem hjúkrunarfæðingar eru.
Áfram hjúkrunarfræðingar
-Höfundar eru starfandi hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku SAk