Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir umgjörð varðandi þjónustu, meðferð og stuðning við börn með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) og skyldar raskanir. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef velferðarráðuneytisins.
Tilgangur hópsins er að gera yfirlit yfir greiningar á ADHD meðal barna á fyrsta þjónustustigi. Jafnframt að yfirfara þjónustuferli við börn með þessar greiningar á fyrsta öðru og þriðja þjónustustigi. Þá er hópnum ætlað að kanna flæði og samvinnu kerfa og þjónustustiga og bið eftir þjónustu á hverju stigi, greina veikleika og helstu hindranir og leggja mat á hvaða aðgerðir gætu helst stuðlað að úrbótum.
Núverandi þjónusta á að fara í gegnum kostnaðargreiningu á öllum þjónustustigum, hvernig kostnaðurinn skiptist á milli þjónustuveitenda og þjónustuþega, leggja mat á hvernig núverandi þjónusta mætir þörfum barna með ADHD, áætla þörf fyrir þjónustu á næstu árum og setja fram tillögur um aðgerðir ásamt kostnaðargreiningu.
„Starfshópurinn skal hafa víðtækt samráð við aðra hlutaðeigandi s.s. Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Barnaverndarstofu, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Umhyggju og aðra eftir atvikum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Áætlað er að hópurinn skili niðurstöðum í september 2016. /epe.