Starfsgreinasambandið nauðsynlegur vettvangur fyrir íslenskt verkafólk

Framtíð Starfsgreinasambandsins var Birni Snæbjörnssyni, formanni sambandsins, hugleikin í setningarræðu hans á 3. þingi SGS sem hófst í morgun. Í ræðu sinni sagði hann m.a. "Ég tel að Starfsgreinasambandið sé nauðsynlegur vettvangur fyrir íslenskt verkafólk. Eitt af meginverkefnum þessa þings verður að ræða framtíð sambandsins."

Björn sagði að ef Starfsgreinasambandið verði lagt niður þá muni það veikja samstöðu launafólks og í raun eyðileggja besta verkfærið sem almennt launafólk hefur til baráttu.

Nýjast