Staða lífeyrissjóðsins Stapa þokkalega sterk

Frá fundinum hjá Framsýn í gærkvöld.
Frá fundinum hjá Framsýn í gærkvöld.

Lífeyrissjóðurinn Stapi stóð fyrir opnum fundi um lífeyrismál í samstafi við Framsýn- stéttarfélag í gærkvöld. Fundurinn var fjölmennur og urðu þar miklar umræður. Í fréttatilkynningu frá Framsýn, er haft eftir Kára Arnóri Kárasyni framkvæmdastjóra Stapa, að staða lífeyrissjóðsins sé þokkalega sterk. Stjórn Stapa lhefur boðað til nokkurra sjóðfélagafunda í samstarfi við stéttarfélögin á næstu dögum. Tilefni fundanna er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. 

„Okkur finnst skýrslan ekki gefa rétta mynd af því hvernig lífeyrissjóðirnir komu út úr hruninu, of mikil áhersla sé lögð á hvað fór aflaga. Að sjálfsögðu er eðlilegt að ræða þau atriði, en okkur finnst skýrsluhöfundar ekki draga fram hvað vel og rétt var gert. Lífeyrissjóðirnir urðu vissulega fyrir miklu höggi í kjölfar bankahrunsins, þar með talinn Stapi,“ segir Kári Arnór í fréttatilkynningu Framsýnar. Hann segir að lesa megi út úr skýrslunni að lífeyrissjóðirnir séu nánast horfnir, sem sé fjarri lagi. „Við höfum ekki náð að ávaxta sjóðinn nógu vel til að standa að fullu undir lífeyrisréttindum, sem eru verðtryggð auk 3,5% vaxta. Samt sem áður bendi ég á að lífeyrisgreiðslur hafa hækkað meira en laun flestra launþega. Lífeyrir hefur hækkað um 28 % frá hruni. Staða Stapa er þokkalega sterk og ég er bjartsýnn á að við séum langt komin með að jafna okkur eftir hrunið. Framtíðin er hins vegar óljós og verður alltaf.“ 

Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar segir í fréttatilkynningunni að fundurinn hafi verið gagnlegur. „Staðan var skýrð út á mannamáli og hinum almenna sjóðsfélaga gafst kostur á að tala milliliðalaust við stjórnendur sjóðsins og segja sína skoðun. Að mínu viti hefur umræðan um lífeyrissjóðina verið á margan hátt ósanngjörn, hitt er svo annað mál ýmislegt má bæta í kerfi íslenskra lífeyrissjóða og mér sýnist að sjóðirnir séu í gagngerri naflaskoðun.“

Aðalsteinn segir að fyrir hrun hafi útrásarvíkingarnir haldið úti svikamyllu í fjármálakerfinu. „Leikrit voru sett á svið og markaðurinn blekktur fram og til baka. Lífeyrissjóðirnir bitu á agnið eins og aðrir fjárfestar,  vissu ekki annað en að þeir væru að gera rétt. Það er auðvelt að gagnrýna þessa hluti í dag, en fyrst og fremst þurfum við að læra af því sem aflaga fór í samfélaginu og byggja okkur upp á nýjan leik.” Aðalsteinn sér fyrir frekari sameiningu lífeyrissjóða í framtíðinni. Þeir eru í dag rúmlega þrjátíu en hann telur að hugsanlega mætti fækka þeim niður í einn tug eða svo. Þá sé sömuleiðis brýnt að jafna réttindi fólks, munurinn í dag sé allt of mikill. 

Á fundinum í gær urðu mjög líflegar umræður um stöðu Stapa, starfsemi sjóðsins og framtíðar fyrirkomulag varðandi stjórnun sjóðsins. Hópur fundarmanna tók til máls og spurði forsvarsmenn út í málin enda liggja þau þungt á sjóðsfélögum. Fundarmenn voru almennt ánægðir með fundinn og þær upplýsingar sem fram komu um starfsemi sjóðsins, segir ennfremur í fréttatilkynningu Framsýnar.

 

Nýjast