Staða kvenna innan listheimsins

G.Erla - Guðrún Erla Geirsdóttir myndhöfundur og listfræðingur heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni Frá týndum myndlistarkonum til Guerrilla Girls í á morgun, fimmtudaginn 10. mars, kl. 17.15 í Miðsal Listasafnsins á Akureyri og tileinkar hann Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars sl. aðgangur er ókeypis. Á fyrirlestrinum verður staða kvenna innan listheimsins rædd og hversu mikið hún hefur breyst frá því skrif Lindu Nochlin „Hvers vegna hafa ekki verið til neinir miklir kvenlistamenn? birtust í ARTnews 1971. Rit sem vörðuðu leiðina í baráttunni fyrstu árin verða skoðuð og m.a. talað um ritgerð Lucy Lippard „Frá miðjunni“ frá 1976 og bók Germaine Greere „Hamlaða kynið“ frá 1979.

Staðan hér innanlands verður einnig rædd og breytingar síðustu áratuga skoðaðar en G.Erla var í hópi þeirra kvenna sem stóðu að því að fá veggspjöld Guerrilla Girls á sýningu í Nýlistasafninu 1994. Hópurinn tók þá saman upplýsingar um stöðuna hér á landi og var sýningin Kvennatími – Hér og nú 30 árum síðar á Kjarvalsstöðum síðastliðið haust og þátttaka Guerilla Girls á Listahátið 2015 tilefni þess að innlenda kynjalandslagið í myndlist í dag var skoðað.

G.Erla hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar, en ein fyrsta einkasýning hennar var í Rauða húsinu á Akureyri. Hún hefur í gegnum tíðina skipulagt ýmsa viðburði og myndlistasýningar t.d. Hér og nú (Kjarvalsstaðir, 1985), Landlist við Rauðavatn (Listahátíð, 2000) og Undir berum himni (Listahátíð, 2013).  G.Erla er ein af stofnendum kvennaframboðsins og Kvennalistans og sat fyrir hönd þeirra í menningarnefndum Reykjavíkurborgar. Hún var framkvæmdastýra Listahátíðar kvenna árið 1985.

Nýjast