27. febrúar, 2011 - 19:19
Fréttir
SR gerði sér lítið fyrir og skellti nýkrýndum deildarmeisturum SA Víkingum, 6:4, í Skautahöll Akureyrar í kvöld
í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí. SR komst í 5:1 en gestirnir höfðu 2:1
yfir eftir fyrsta leikhluta og skoruðu svo þrjú mörk gegn engu heimamanna í öðrum leikhluta. Staða SR var því vænleg fyrir
þriðja og síðasta leikhluta . SA Víkingar gáfust ekki upp og skoruðu þrjú mörk í þriðja leikhluta gegn einu SR en
það kom of seint og afar sterkur útisigur SR-inga í höfn.
Þar með hefur SR tekið 1:0 forystu í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að landa Íslandsmeistaratitlinum. Liðin mætast
að nýju næstkomandi þriðjudag á heimavelli SR í Skautahöllinni í Laugardal.
Mörk SR: Egill Þormóðsson 2, Svavar Rúnarsson 1, Pétur Maack 1, Þórhallur Viðarsson 1, Arnþór
Bjarnason 1.
Mörk SA Víkinga: Jón Benedikt Gíslason 3, Sigmundur Sveinsson 1.