Spilar með landsliðum í þremur íþróttagreinum

Blak-og íshokkídrottningin Birna Baldursdóttir hefur afrekað það á árinu að vera valinn í landsliðið í þremur íþróttagreinum á þessu ári. Birna, sem er þrítug að aldri, hefur verið í íshokkílandsliðinu og blaklandsliðinu undanfarin ár en hefur nú einnig komist í landslið Íslands í strandblaki.

„Ég bara veit það ekki en þetta er allavega fint,” segir Birna, aðspurð um það hvort það sé ekki einstakt afrek að vera í þremur landsliðum á sama tíma. Eins og gefur að skilja fer mikill tími í æfingar og mót hjá Birnu en hún segir það ekki erfitt að púsla þessum íþróttagreinum saman.

Nánar er rætt við Birnu í  Vikudegi í dag.

Nýjast