Veðurklúbburinn Dalbær hefur sent frá sér spá fyrir júnímánuð. Hún er býsna jákvæð þótt ekkert sé öruggt með sólskinsstundir. Ríkjandi áttir framan af júní mánuði koma til með að verða suð- og suðaustlægar og þokkalegur hiti, en ekki öruggt með sólfar. Í kringum 17. júní gæti vindátt snúist í NA og þá kólnar lítillega. Þetta stendur ekki lengi og veður fer fljótt hýnandi. Tunglið sem kviknaði 28. maí í V. kl. 18:40 verður ríkjandi fyrir veðurfar í mánuðinum þar sem nýtt tungl kviknar ekki fyrr en 27. júní og þá í A."
"Gera má ráð fyrir góðri sprettutíð og fyrir þá sem áhugasamir eru um berjahorfur er reiknað með góðri berjasjprettu þegar líður á sumarið, en frekari grein verður gerð fyrir því þegar líður á sumarið.
Spámennirnir í Dalbæ fóru einnig yfir veðurfarið í maí. Fundarmenn voru á einu máli um að maí spáin hafi staðið fyllilega undir væntingum og jafnvel rúmlega það."