Sólmyrkvi í þúsund metra hæð

Áhugasömum gefst kostur á að sjá sólmyrkvann í þúsund metra hæð.
Áhugasömum gefst kostur á að sjá sólmyrkvann í þúsund metra hæð.
Sólmyrkvi verður á morgun og mun hann ná hámarki um kl. 9.40. Af því tilefni hefur verið ákveðið að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli strax kl. 8.00 í fyrramálið og þannig gefst fólki kostur á að komast upp í fjall með Fjarkanum og síðan Stromplyftunni og horfa á sólmyrkvan í um 1.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Tekið skal fram að stórhættulegt er að horfa á sólmyrkvann berum augum og verður fólk að nota til þess gerð hlífðargleraugu.
 
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að þótt líklega verði skýjað í nótt þá eigi hann von á því að rofi til í fyrramálið.

„Ég held að þeir sem eiga þess kost ættu að nýta sér þetta einstaka tækifæri og fara með lyftunni upp í Stromp. Þeir komast þá þúsund metrum nær sólinni og það munar um minna!“
 

Nýjast