06. janúar, 2011 - 12:04
Fréttir
Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk dagana 7. janúar og
10 - 12 janúar nk. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð þar sem
hægt verður að losa sig við trén. Tré sem safnast verða jarðgerð í jarðgerðarstöðinni Moltu.