Hjónin Guðrún Rósa Friðjónsdóttir og Óskar Aðalgeir Óskarsson héldu stór bingó í byrjun september á Akureyri til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, og söfnuðu þau rúmlega 200 þúsund krónum. Lögðu þau hjónin ómælda vinnu í söfnun vinninga og voru tugir fyrirtækja í bænum sem gáfu glæsilega vinninga. Einnig voru samtök og fyrirtæki sem aðstoðuðu við að gera þennan viðburð að veruleika. Má nefna að KA-heimilið lánaði húsnæði, Þór lánaði bingóspjöld og búnað og Dagskráin gaf fríar auglýsingar.
Það er ómetanlegt að sjá hversu mikið tveir einstaklingar geta áorkað þegar viljinn og áhuginn hvetur þau áfram, segir á heimasíðu Aflsins. Til þess að setja þetta í samhengi við starfið hjá Aflinu þá getum sagt sem svo að þessi upphæð sem þau söfnuðu, ein og sér, dugar fyrir einum sjálfhjálparhópi þar sem 6-8 manns
hittast í 15 skipti.
-þev