Sofa á dýnum vegna plássleysis

Undanfarnar fjórar vikur hefur verið óvenju mikill álagstími á bráðalegudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Suma daga hafa verið innritaðir allt að tólf sólarhringssjúklingar í tíu pláss og fjórir dagsjúklingar í eitt pláss. Dæmi eru um að sjúklingur hafi þurft að sofa á dýnu vegna plássleysis. Forstöðulæknir geðlækninga á SAk segir ástandið hafa reynt töluvert á suma sjúklinga, aðstandendur þeirra og starfsfólk deildarinnar. Ítarlegra er fjallað um þetta mál í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.

-þev

Nýjast