Snorri krefur Akureyrarbæ um 13,7 milljónir í bætur

Snorri í Betel. Mynd/Þröstur Ernir
Snorri í Betel. Mynd/Þröstur Ernir

Snorri Óskarsson, gjarnan kenndur við Betel, hefur krafið Akureyrarbæ um tæpar 13,7 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Frá þessu var greint í Morgunblaðinu. Snorri starfaði sem grunnskólakennari við Brekkuskóla en var sagt upp störfum árið 2012 vegna ummæla um samkynhneigð sem hann lét falla á bloggsíðu sinni.

Eins og Vikudagur hefur áður fjallað um sagði Snorri m.a. á bloggsíðu sinni að samkynhneigð teldist vera synd og laun syndarinnar væru dauði. Hann var áminntur og sendur í sex mánaða leyfi og síðan sagt upp störfum. Hann kærði uppsögnina til innanríkisráðuneytisins. Akureyrarbæ var gert að greiða málskostnað sinn og Snorra.

Snorri leitaði til innanríkisráðuneytisins eftir uppsögnina. Niðurstaða þess var að hún hefði verið ólögmæt. Bæjaryfirvöld á Akureyri sættu sig ekki við þá niðurstöðu og höfðuðu dómsmál til að fá úrskurðinum hnekkt. Bærinn tapaði málinu á báðum dómsstigum, fyrir Héraðsdómi Norðurlands
eystra og í Hæstarétti snemma á síðasta ári.

Hæstiréttur skýrði heimildarákvæði um áminningu í kjarasamningi grunnskólakennara svo að það bæri ekki með sér að heimilt væri að áminna fyrir brot utan starfs. Gildir þá einu hvort um er að ræða hatursumræðu vegna samkynhneigðar á samfélagsmiðlum eða aðra vansæmandi háttsemi, eins og hatursummæli byggð á kynþætti eða stöðu.

Nýjast