Vegna fréttar sem sýnd var í kvöldfréttartíma RÚV í gær þar sem yfirkokkur Striksins sást sleikja skeið og stinga henni í sósu sem gestir áttu að borða, vilja eigendur veitingastaðarins Striksins á Akureyri koma eftirfarandi á framfæri: Í kvöldfréttartíma RÚV í gær þar sem verkfall starfsgreinasambandsins var til umfjöllunar var viðtal við yfirmatreiðslumann okkar á Strikinu, Garðar Kára Garðarsson um áhrif verkfallsins á starfsemi veitingastaðarins en 80% af okkar starfsfólki er í verkfalli.
Garðar Kári var, ásamt einum öðrum að afgreiða um 120 manns um leið og hann var í viðtali í beinni útsendingu á RÚV. Undir þessu mikla álagi gerði hann þau mistök að nota skeiðina sem hann hafði smakkað sósuna með, til þess að skammta á diskana. Myndatökumaður RÚV benti strax á þetta þannig að maturinn fór aldrei til gestanna en það sést ekki í myndskeiðinu á RÚV þar sem útsendingu var lokið. Við hörmum þetta atvik og biðjumst afsökunar á því.
Við erum búin að ræða málið innanhúss og munum sjá til þess að þetta gerist ekki aftur enda eru svona vinnubrögð með öllu óásættanleg. Þessi mistök skrifast alfarið á of mikið álag og undirmönnun vegna verkfallsins. Þetta eru ekki vinnbrögð sem Garðar Kári viðhefur að öllu jöfnu, hann er þaulreyndur matreiðslumaður og í kokkalandsliðinu. Við vonum að verkfallið leysist sem fyrst þar sem það segir sig sjálft að ekki er endalaust hægt að keyra á örfáum starfsmönnum, hvorki á okkar veitingastað né á öðrum vinnustöðum landsins. Þetta ástand bíður upp á mistök sem þessi.
-Heba Finnsdóttir, eigandi veitingahússins Striksins og Bryggjunnar á Akureyri.