Skuggatríó Sigurðar Flosasonar ríður á vaðið í Hofi

Sigurður Flosason. Mynd/ MAk
Sigurður Flosason. Mynd/ MAk

Hið léttblúsaða Skuggatríó Sigurðar Flosasonar heldur tónleika í Hömrum í Hofi fimmtudaginn 9. júní kl 20. Þetta eru fyrstu tónleikarnir í sumardagskrá  Menningarfélags Akureyrar í samstarfi við Bistro 1862.

Sigurður Flosason saxófónleikari, Þórir Baldursson Hammond orgelleikari og Einar Scheving trommuleikari eru Norðlendingum og gestum þeirra að góðu kunnir en tríóið mun án efa leika við hvern sinn fingur fyrir áheyrendur sína á þessum fyrstu tónleikum sumarsins. Meðan á tónleikunum stendur mun Bistró 1862 þjóna til borðs með mat og drykk.

Menningarfélag Akureyrar og Bistró 1862 standa fyrir þremur sunnudagstónleikum í sumar auk þriggja tónleika á fimmtudögum. Fyrstu sunnudagstónleikarnir verða 19. júní á Bistro 1862 með finnsku hljómsveitinni Grímsey. Þar er gítarleikarinn Matti Saarinen í fararbroddi en hljómsveitin spilar frumsamda tónlist.

Nýjast