Skrifað undir þjónustusamning við Isavia

Mynd: Þorgeir Baldursson
Mynd: Þorgeir Baldursson

Innanríkisráðherra og forstjóri Isavia skrifuðu nýverið undir þjónustusamning ráðuneytisins og Isavia til eins árs. Samningurinn kveður á um fjárveitingar og verkefni Isavia á þessu ári sem snúast einkum um rekstur og þjónustu á flugvöllum landsins. Þá fjallar hann um framkvæmdir á flugvöllum landsins utan Keflavíkurflugvallar og loks um flugleiðsöguþjónustu bæði innanlands og á alþjóðlegu flugsvæði. Gert er ráð fyrir að unnið verði að gerð langtíma þjónustusamnings sem taki gildi frá og með næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins.

Um er að ræða mjög ítarlegan Þjónustusamning, alls um 170 blaðsíður með viðaukum. Ráðuneytið mun greiða rúmlega 1,6 milljarða króna fyrir þjónustu og 300 milljónir fyrir viðhalds- og stofnframkvæmdir á flugvöllum og eru verkefnin skilgreind nánar bæði í samningnum og viðaukum.

„Samningurinn gerir einnig ráð fyrir því að Isavia geti aflað tekna frá þriðja aðila vegna fasteigna, búnaðar og lóða sem fyrirtækið fær afnotarétt af með samningnum en nýtir ekki sjálft svo og vegna þjónustu fyrir þriðja aðila eða notendur á flugvöllum og lendingarstöðum sem samningurinn tekur til,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Önnur atriði í þjónustusamningnum kveða á um eftirlit, tryggingar, upplýsingaskyldu, samráð, vanefndir og fleira. Samninginn undirrituðu Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. /epe.

 

Nýjast