Skrifað undir nýja kjarasamninga

Eftir eina lengstu viðræðutörn í seinni tíð var loks skrifað undir nýja kjarasamninga í húsakynnum ríkissáttasemjara á sjöunda tímanum í kvöld. Á vef SGS má lesa eftirfarandi um málið: "Kröfugerð samninganefndar Starfsgreinasambandsins var kynnt Samtökum atvinnulífsins 6. desember sl. en kjarasamningurinn rann út þann 30. nóvember."

"Síðan eru liðnir fimm mánuðir í erfiðum og vandasömum viðræðum en nú er samningur loks í höfn. Vegna þessarar tafar gerir samningurinn ráð fyrir eingreiðslu að fjárhæð kr. 50.000 fyrir lok maí en launahækkanir koma svo til framkvæmda 1. júní. Margar bókanir (alls 21) um sérmál starfsgreinasviðanna og breytingar á aðalkjarasamningi sambandsins náðu fram að ganga þó þær verði ekki tíundaðar hér í bili.

Það var meginmarkmið samninganefndar Starfsgreinasambandsins að endurheimta þann kaupmátt sem glatast hefur frá upphafi efnahagshrunsins, minnka atvinnuleysið og tryggja hinum lægst launuðu auknar kjarabætur. Sá samningur sem undirritaður var í dag er veigamikill þáttur í þeirri vegferð, upphaf að endurreisninni. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld þurftu að koma að málinu saman svo væntingar gangi eftir og verðbólga drekki ekki kjarabótunum. Krafan um 200 þúsund króna lágmarkslaun strax náðist ekki. Hún kemur hins vegar í áföngum, fer úr kr. 165 þús. í kr. 182 þús. 1. júní og svo 193 þúsund 1. des. 2012 og loks í 204 þús. krónur 1. febrúar 2013, en hækkunin er tæp 24% á samningstímanum.

Það var skýr krafa okkar allan tíman að krónutöluhækkun kæmi á launataxtana, enda kemur það þeim sem vinna á strípuðum launatöxtum mun betur. Okkur hefur því tekist enn eina ferðina að verja og bæta kaupmátt hinna lægst launuðu, allt að 13% á samningstímanum. Þá hefur einnig tekist að ná fram umframhækkun í fiskvinnslu og ræstingu, en reiknitölur í bónus- og ákvæðisvinnu hafa setið eftir í kjarasamningum liðinna ára. Það er nú lagfært verulega.

Samningurinn gerir ráð fyrir annars vegar almennum launahækkunum þann

1. júní 2011 4,25%

1. febrúar 2012 3,5%

1. febrúar 2013 3,25%

Launatafla Starfsgreinasambandsins hækkar þó meira, eins og áður sagði, eða um 12.000 krónur 1.júní n.k. og svo um 11.000 kr. árin 2012 og 2013.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki verða:

1. júní 2011 kr. 182.000 á mánuði.

1. febrúar 2012 kr. 193.000 á mánuði

1. febrúar 2013 kr. 204.000 á mánuði."

Nýjast