Anna Berglind Pálmadóttir, kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri, hefur náð eftirtektarverðum árangri í hlaupum á skömmum tíma. Hún byrjaði að æfa hlaup í maí í fyrrasumar og komst ári síðar í landsliðið og á m.a.besta tíma ársins í hálfmaraþoni hér á landi.
Anna Berglind hefur komið eiginmanninum, Helga Rúnari Pálssyni, í hlaupin og náðu þau góðum árangri í fjallahlaupi á Spáni nú fyrir skemmstu. Vikudagur spjallaði við Önnu um hlaupadelluna sem hún tók föstum tökum en nálgast má viðtalið í prentútgáfu Vikudags.