Skora á ríkisstjórnina að niðurgreiða innanlandsflug

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Njáll Trausti Friðbertsson bæjarfulltrúi á Akureyri óskaði eftir eftir umræðu um innanlandsflugið sem almenningssamgöngur á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Eftirfarandi bókun var samþykkt í framhaldi af umræðunni:

„Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórn Íslands að taka til skoðunar niðurgreiðslu- og jöfnunarkerfi í innanlandsflugi. Í þessu sambandi er bent á leið sem farin hefur verið í Skotlandi til að koma til móts við íbúa sem treysta á flugsamgöngur á strjálbýlli svæðum landsins. Þessi leið sem gengur undir nafninu Air Discount Scheme for the Highlands and Islands veitir íbúum með lögheimili á ákveðnum svæðum rétt til 50% afsláttar af fargjöldum hjá flugfélögum sem taka þátt í verkefninu“.  

Nýjast