Stofna á vinnuhóp til þess að kom með tillögur að tímabundnum lokunum Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis á Akureyri fyrir bílaumferð yfir sumartímann, eða frá tímabilinu maí til september. Skipulagsnefnd hefur óskað eftir því að Akureyrarstofa tilnefni tvo fulltrúa, Miðbæjarsamtökin tvo fulltrúa, hverfisnefnd Innbæjar og Brekku einn fulltrúa og hverfisnefnd Oddeyrar einn fulltrúa í vinnuhópinn.
Skiptar skoðanir eru á meðal hagsmunaaðila um lokanir í göngugötunni í miðbæ Akureyrar en sú venja að loka götunni tímabundið á sumrin hefur lengið verið hitamál. Meðan sumir vilja skapa stemmningu með því að loka fyrir bílaumferð eru aðrir því ósammála og segja stemmninguna ekkert minni með bílaumferð og að lokanir tryggi ekki
að gatan fyllist af fólki.