Skapandi greinar í Ketilhúsinu

Í dag kl. 15:00 opnar sýningin Urta Islandica ehf. Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi Ketilhúsinu. Sýningin samanstendur af myndlist, gjörningum, vöruhönnun, matvælaiðnaði og verslun. Tilgangurinn er að skoða samlegðaráhrif þessara ólíku sviða og þá orku sem losnar úr læðingi þegar skapandi greinar á borð við myndlist komast í tæri við fjármagn sem tengist viðskiptalífinu og öfugt. Spjótum verður beint að ríkjandi stigveldishugsun innan listgreina og því viðhorfi að listirnar

séu í eðli sínu hreinar, frjálsar og óháðar markaðnum. Á sama tíma verður þeirri hugmynd andmælt að listirnar séu byrði á samfélaginu, listamenn afætur og að leggja eigi niður opinbera styrki á þessu sviði. Viðburðurinn er hugsaður sem samræðugrundvöllur og vettvangur fyrir nýja hugmyndafræði þar sem siðfræði, samfélagsábyrgð og sjálfbærni gegna lykilhlutverki. Sýningin stendur til 21. September og er opin alla daga nema mánudaga kl. 10-17 en kl. 12-17 frá og með 2. september.

Nýjast