Sjö útköll á dag hjá Slökkviliðinu

Það sem af er ári hafa sjúkrabílar Slökkviliðs Akureyrar verið boðaðir í 2079 útköll. Það gera um sjö útköll á dag. Slökkviliðið hefur til umráða fjóra sjúkrabíla en að lágmarki eru tveir bílar mannaðir öllum stundum.

Í ýmsum tilfellum fara tveir sjúkrabílar úr húsi í sama verkefnið en það gildir meðal annars um útköll í hjartastopp, meðvitundarleysi, meiriháttar bílslys o.fl. Þau útköll telja samt sem áður sem eitt, segir á Facebooksíðu Slökkviliðsins.


Athugasemdir

Nýjast