Sjálfstæði eða fall?

Ágústa Ágústsdóttir skrifar
Ágústa Ágústsdóttir skrifar

Þann 1. júní næstkomandi kjósum við okkur forseta. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn nauðsynlegt að velja í stólinn sterkan einstakling sem talar skýrt og óhikað um nauðsyn þess að koma í veg fyrir afsal íslenskra auðlinda. Þó ekki með fallegu tali kringum hluti til að snapa inn fölsk atkvæði, heldur með skýru tali um að Landsvirkjun verði ekki seld til erlendra fjármálaafla á hans vakt og vindmyllum í eigu erlendra fjármálaafla verði ekki hleypt inn á orkukerfi landsins til að arðræna og menga með fölskum fyrirheitum og lygum um "græna" orku.

 Við skulum líka ekki gleyma að það styttist í næstu alþingiskosningar og úlfarnir nú þegar lagðir af stað að slá ryki í augu fólks.

Gleymum ekki Icesave þar sem Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi forseti og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, síðar forsætisráðherra björguðu þjóðinni undan grimmum skuldaörlögum sem bæði Vinstri grænum og Samfylkingunni fannst sjálfsagt að leggja ofan á þegar nauðbeygð bök þjóðarinnar. Örlög sem ullu því að einn forsetaframbjóðandi fékk skyndilegt minnisleysi yfir þegar spurður út í nýlega.

Gleymum ekki heldur loforði þessa tveggja flokka um skjaldborg heimilanna sem skyndilega breyttist í skjaldborg fjármálaaflanna.

Þegar Kristrún Frostadóttir steig fram sem nýr formaður Samfylkingar og lýsti yfir að innganga í ESB yrði ekki í forgangi fyrir næstu alþingiskosningar var ljóst að daðrið beindist að Sjálfstæðisflokknum. Flokk sem fyrir löngu hefur yfirgefið grunngildi sín, þ.e. að verja sjálfstæði landsins.

Nú höfum við í framboði til forseta fyrrum forsætisráðherra núverandi ríkisstjórnar og formann flokks sem skiptir litum oftar en kamelljón, sem skilur eftir sig þjóðarbú í molum en tekst á einhvern óskiljanlegan hátt að ná hylli með fallegu brosi og umbúðatali kringum hlutina án þess að þurfa að taka beina afstöðu til neins. Höfum við ekki lært neitt á undanförnum árum?

Auðlindir hverrar þjóðar er kjarni sjálfstæðis hennar.

Kjósum forseta sem þekkir sinn lit (pólitískan eður ei) sem er óhræddur við að hafa skoðanir og stendur með þeim. Við þurfum ekki á forseta að halda sem telur sitt hlutverk vera tipl milli skips og bryggju til að sækjast eftir viðurkenningu allra. Slíkur forseti endar að lokum á hundasundi blautur og kaldur í sjónum ásamt sjálfstæði landsins!

Við skulum hafa í huga að við stöndum í stríði. Stríði um yfirráð auðlinda okkar sem erlend fjármálaöfl gera mikið til að komast yfir. Þessi öfl ráðast ekki í slíkar herferðir vegna þess að þjóðir eru fátækar heldur vegna þess að þær eru ríkar af auðlindum en innviðir og stjórnsýsla eru veikbyggð og/eða spillt.

Forsetinn er sá eini sem hefur vald til að bregðast við þegar Alþingi bregst hlutverki sínu.

 

Höfundur er Ágústa Ágústsdóttir

Varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.


Athugasemdir

Nýjast