Sigurgeir gefur ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn kúabænda

Sigurgeir Hreinsson, varaformaður Landssambands kúabænda og bóndi á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn Landssambands kúabænda á næsta aðalfundi sambandsins sem haldinn verður á Hótel Kea á Akureyri 25. og 26. mars n.k. Sigurgeir var kjörinn í stjórn LK á aðalfundi 2009. Hann er einnig formaður stjórnar Búnaðarsambands Eyjafjarðar.  

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður megin verkefni fundarins í ár að afgreiða stefnumörkun kúabænda til næstu 10 ára. Þungamiðja þess verkefnis er að finna leiðir til lækkun framleiðslukostnaðar, til að auka samkeppnishæfni greinarinnar og bæta kjör þeirra sem hana stunda. Fundinn sækja 42 fulltrúar 13 aðildarfélaga Landssambands kúabænda um allt land. Þá má þess geta að í ár eru 25 ár liðin frá stofnun samtakanna, 4. apríl 1986. Þá voru umbrotatímar í mjólkurframleiðslunni, ekki síður en nú um stundir.

Nýjast