Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman klukkan 16:00 í dag og er þetta væntanlega síðasti fundur kjörtímabilsins. Ljóst er að mikil endurnýjun verður í bæjarstjórn, þar sem margir núverandi bæjarfulltrúar sækjast ekki eftir endurkjöri. Sá sem hefur setið lengst allra í bæjarstjórn er Oddur Helgi Halldórsson, stofnandi L-listans.
Oddur hefur verið bæjarfulltrúi L-listans frá stofnun hans, eða í 16 ár. Þar á undan var hann þrjú ár sem varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og eitt sem bæjarfulltrúi flokksins. Hann hefur setið í bæjarráði frá 1998 auk fjölda nefnda og vinnuhópa á vegum bæjarins.
Oddur Helgi sækist ekki eftir endurkjöri í bæjarstjórn.