Sex bílar skemmdust í árekstri í Gilinu

Bílarnir í Gilinu, mynd af mbl.is. Mynd: Skapti.
Bílarnir í Gilinu, mynd af mbl.is. Mynd: Skapti.

Sex bílar eru skemmdir eftir óhapp á Akureyri í dag. Óhappið varð með þeim hætti að ökumaður sem var á leið í jarðarför í Akureyrarkirkju sneri við efst í Kaupvangsstræti og hugðist leggja aftan við röð bíla, en náði ekki að stoppa í mikilli hálku. Bíllinn rann á þann næsta og þannig koll af kolli. Nokkrir bílanna virtust við fyrstu sýn töluvert skemmdir en tjón liggur ekki fyrir á þessari stundu. Eigendur bílanna, nema þess aftasta, vissu ekki af óhappinu fyrr en þeir komu úr kirkju eftir jarðarförina. Þetta kemur fram á mbl.is.

Nýjast