Sérsveitarmenn vakta hús fulltrúa sýslumanns
Sérsveitarmenn á vegum ríkislögreglustjóra vakta hús fulltrúa sýslumannsins á Akureyri þar sem bensínsprengju var kastað í mannlausan bíl um fimmleytið í fyrrinótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið yfir rannsókn málsins þar sem lögreglan á Akureyri telst vanhæf vegna tengsla við fórnarlambið. Atvikið átti sér stað við heimili mannsins í Grundargerði í Brekkuhverfi og telur lögreglan að um hefndaraðgerð sé að ræða gegn fulltrúa sýslumannsins. Nágrannar mannsins í Grundargerði sem Vikudagur hefur rætt við eru óttaslegnir og hafa sumir þeirra ákveðið að vopnast af ótta við frekari ódæðisverk í hverfinu. Tveir menn eru í haldi lögreglunnar grunaðir um verknaðinn.
-þev