Sendinefnd Framsýnar tók með sér egg í vöfflur til Reykjavíkur

Formaður og varaformaður Framsýnar eru á leiðinni suður til fundar við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk á almennum vinnumarkaði undir vökulli stjórn ríkissáttasemjara. Sendinefndin tók með sér hamingjuegg úr íslenskum landsnámshænum, í eigu Aðalsteins Baldurssonar formanns, sem verða færð sáttasemjara til að nota í vöfflubakstur að loknum fundi.  

Hefð er fyrir því að eftir undirritun samninga í Karphúsinu sé boðið upp á vöfflukaffi. Sem stendur er sendinefndin föst á Akureyrarflugvelli vegna bilunar í flugvél Flugfélags Íslands og því gætu fundahöldin tafist, en þau áttu að hefjast klukkan 11 í Karphúsinu. Vonast er til að sendinefndin verði komin suður til fundar kl. 14.00. Formaður Framsýnar segist ekki trúa  öðru en að hægt verði að bjóða upp á dýrindis vöfflukaffi síðar í dag. Hann sagði þó að fulltrúar SA hefðu ekki sýnt það í viðræðunum undanfarnar vikur að þeir séu á þeim buxunum að fara að semja. Því væri spurning  hvort að bjartsýni sendinefndarinnar ætti eftir að reynast réttmæt um það að gengið frá samningum síðar í dag. Hann sagði hins vegar engar vöfflur um það að reynt verði til þrautar í dag að ná samningi og sagðist vonast til að vöffluilmur muni berast um Borgartúnið þegar líður á daginn. Þetta kemur fram á vef Framsýnar.


Athugasemdir

Nýjast