Icelandair hótel á Akureyri býður upp á amerískt þakkargjörðarhlaðborð um helgina og mun Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson sem vann keppnina Matreiðslumaður ársins 2011 verða gestakokkur.
Þetta verður heilmikil matarveisla, enda skilst mér að fjölmargir bandarískir gestir séu um þessar mundir á hótelinu fyrir norðan. Forréttirnir eru nokkrir, meðal annars reyktur lax, grasker, grenigrafin bleikja og kjúklingalifur. Fylltur kalkúnn er í aðalrétt og auk þess heilsteiktar kalkúnabringur og moðsoðin rifin kalkúnalæri. Með kjötinu bjóðum við upp á aprikósu fyllingu, bakaðar sætar kartöflur með sykurpúðum og fleira og fleira. Í eftirrétt verður hvítt súkkulaði, pekanbaka, og eplabaka. Ég lofa sem sagt sannkallaðri veislu fyrir norðan um helgina, segir Sigurður Kristinn, sem starfar á veitingastaðnum Vox í Reykjavík. Hann keppir í upphafi næsta árs í virtustu keppni matreiðslumanna sem haldin er, Bocuse d´or keppninni í Frakklandi. Allur hans tími fer í að undirbúa þátttöku í keppninni, en hann féllst þó á að stýra eldamennskunni á Icelandair hótel á Akureyri um helgina.
Þetta er spennandi verkefni og ég hlakka til. Hótelið er glæsilegt og ég veit að öll þjónusta er til fyrirmyndar.
Í kvöld verður bandaríski sendiherrann á Íslandi, Luis E. Arreaga heiðursgestur.
karleskil@vikudagur.is