Salan hefur verið alveg einstaklega góð, segir Ívar Sigurjónsson starfsmaður hjá Byko á Akureyri en þar geta bæjarbúar keypt sand og eða möl í 25 kíló pokum. Í hálkutíð undanfarinna vikna hefur ekki veitt af að grípa til allra þeirra hálkuvarna sem tiltækar eru.
Ívar segir að eðlilega aukist sala á möl og sandi í þeirri fljúgandi hálku sem Akureyringar hafa búið við um skeið og mikið sé afgreitt beint af brettum út í bíla þeirra.
Viðskiptavinunum fjölgar umtalsvert þegar tíð er með þessum hætti, menn koma hér í röðum að fá efni sem vinnur gegn hálkunni, segir hann, en poki af sandi kostar 690 krónur og möl 1052 krónur.
Hann segir að bæjarbúar viti almennt um að þessi kostur standi þeim til boða en undrar sig á því að Akureyrarbær hafi ekki líkt og sum önnur sveitarfélög boðið íbúum að sækja sér sand í haug þar sem þeir gætu tekið það magn sem þeir teldu sig þurfa miðað við stærð þess svæðis sem hálkuverja á hverju sinni.
Hann segir Akureyringa hafa ama af salti og vilji helst ekki nota það til hálkuvarna, flestum hér um slóðir þykir það hvimleitt, það berst með skóm inn í íbúðir og er fólki almennt til skapraunar. Það er líka lítil hefð fyrir notkun þess hér norðan heiða, segir Ívar.