Sandur á svellið

Vegna hálku víðast hvar á Akureyri hefur framkvæmdamiðstöð bæjarins sturtað niður haugum af grófum sandi á völdum stöðum í bænum þar sem fólk getur sótt sér efni til hálkuvarna. Sandinn er að finna á starfsmannabílastæði sunnan Rangárvalla þar sem framkvæmdamiðstöðin er til húsa, við grenndarstöðvarnar norðan við Ráðhúsið, Bónus í Naustahverfi, Skautahöllina, Urðargil og sunnan við Sunnuhlíð.

Nýjast