Hermann Jón Tómasson S-lista sagðist fagna þessari samþykkt um hundahald. Hann sagði varðandi þetta sérákvæði um hundahald í Grímsey og þar hefði m.a. verið hlustað á ósk hverfisráðs. Beiðni hefði komið frá ráðinu um að áfram yrði bann við hundahaldi í eynni. Því væru góð og gild rök fyrir þessu fráviki. Hins vegar var samþykkt breytingartillaga þess efnis; að þeir sem halda fleiri hunda en þrjá þegar samþykktin tekur gildi er skylt að skrá þá innan 6 mánaða og hafa þeir þá leyfi til að halda þá á heimili sínu á meðan þeir lifa. Ný samþykkt um hundahald tekur gildi eftir að hún hefur verið sent tilheyrandi ráðuneyti til skoðunar og staðfestingar.
Einnig fór fram fyrri umræða um kattahald í Akureyrarkaupstað en bæjarstjórn samþykkti að vísa henni til frekari yfirferðar í framkvæmdaráði og síðari umræðu í bæjarstjórn. Samþykktin er keimlík samþykktinni um hundahald. Þar kemur m.a. fram að kattahald er bannað í Grímsey og lausaganga katta er bönnuð í Hrísey. Á fundi bæjarstjórnar kom fram í máli Sigurðar Guðmundssonar A-lista, að hann vildi að lausaganga katta væri bönnuð í öllu sveitarfélaginu. Nokkrar umræður urðu um málið og töldu bæjarfulltrúar að erfitt gæti verið að fylgja slíku banni eftir. Mestu máli skipti að hægt verði að framfylgja þeim reglum samþykktar verða. Fram kom að á Selfossi hefði lausaganga katta verið bönnuð en erfiðlega hafi gengið að fylgja því banni eftir og því hefði verið snúið frá þeirri reglu þar.