Samstúdentar sýna
Yfirskrift myndlistarsýningar sem opnar í Boxi, sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 10, Akureyri, þann 16. júní kl 17.00 er: „25 ára MA stúdentar“. Listamennirnir sem sýna eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Brynhildur Kristinsdóttir, Gústav Geir Bollason,Laufey Margrét Pálsdóttir, Pétur Örn Friðriksson og Sigtryggur Bjarni Baldvinsson. Þessir listamenn sem allir erusamstúdentar úr MA, sýndu saman ásamt fleirum, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fyrir 20 árum síðan, en hafa nú ákveðið að leiða saman hesta sína aftur á þessum tímamótum. Sigurður Ingólfsson mun lesa upp ljóð við opnunina, rétt eins og hann gerði fyrir 20 árum síðan. Sýningin stendur til sunnudagsins 26 júní, og er opin laugardaga og sunnudaga frá 14 - 17.