Samskiptin við SA „nær eingöngu verið með upphrópunum í fjölmiðlum“
Samtök atvinnulífsins vísa á bug alhæfingum verkalýðshreyfingarinnar í gær miðvikudag um almenna brotastarfsemi, m.a. í ferðaþjónustu og byggingariðnaði, út frá þeim afmörkuðu tilvikum sem upp hafa komið að undanförnu.
SA gagnrýna öll slík brot harðlega og vinna heilshugar með stjórnvöldum við að stemma stigu við þau. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef samtakanna.
SA gagnrýnir samskiptamáta verkalýðshreyfingarinnar varðandi réttindamál launafólks og segja samskiptin „nær eingöngu verið með upphrópunum í fjölmiðlum“.
Þá benda samtökin á að engin tölfræði hefur verið lögð fram af hálfu verkalýðshreyfingarinnar um umfang eða alvarleika brota á vinnumarkaði til að reyna að átta sig á raunverulegri stöðu mála.
„Samtök atvinnulífsins sinna ekki opinberu eftirliti og það er ekki hlutverk samtakanna. Vinnumálastofnun, Ríkisskattstjóra og Vinnueftirlitinu ásamt fjölmörgum fleiri eftirlitsaðilum er fyllilega treystandi til að hafa eftirlit með starfandi fyrirtækjum. Verkalýðsfélög gegna hins vegar því eftirlitshlutverki að fylgjast með því að á réttindum félagsmanna þeirra sé ekki brotið og ber að grípa til viðeigandi ráðstafana komi slík mál upp. Ekki er nein ástæða til þess að Samtök atvinnulífsins taki þátt í þessari hagsmunagæslu verkalýðsfélaga fyrir hönd félagsmanna sinna,“ segir í yfirlýsingunni.
Tímabundið átak í þessum efnum var hins vegar gert milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins um framkvæmd eftirlits á vinnustöðum í framhaldi af kjarasamningi aðila um upptöku vinnustaðaskírteina í tilteknum atvinnugreinum árið 2010. Tveir starfsmenn voru til að sinna þessu verkefni og samtökin lögðu tugi milljóna í átakið á árabilinu 2011-2013. #Á þessum þremur árum voru 80 prósent allra eftirlitsferða á vegum SA og afgangurinn af hálfu þeirra fjölmörgu starfsmanna verkalýðsfélaga um allt land sem falið hafði verið að sinna verkefninu,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.
„Ásakanir Framsýnar-stéttarfélags í dag um að Samtök atvinnulífsins láti sig þessi mál ekki varða eru bæði marklausar og ómaklegar. Samtök atvinnulífsins eru ávallt reiðubúin til uppbyggilegs samstarfs við verkalýðshreyfinguna um réttindamál á vinnumarkaði og baráttu gegn brotastarfsemi“. /epe.