Það var einróma mat fundarmanna að samræmd launastefna og samningur til þriggja ára væri ófær leið. Hún myndi tryggja
þeim launahæstu mun meiri krónutöluhækkanir en félagsmönnum á lágmarkslaunum og það væri óásættanlegt.
Ákveðið var að vísa kjaradeilunni ekki til Ríkissáttasemjara að svo stöddu heldur reyna þess í stað til þrautar að
ná samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um sanngjarnar kjarabætur fyrir hönd verkafólks. Þá kom fram á fundinum að
Verkalýðsfélag Akraness, sem líkt og Framsýn afturkallaði samningsumboð sitt frá SGS, hefur óskað eftir nánu samstarfi í
þeirri kjarabaráttu sem framundan er. Þá hefur eitt aðildarfélag SGS til viðbótar haft samband við forsvarsmenn Framsýnar og lýst
yfir áhuga sínum á að fylgja eftir fordæmi Framsýnar og Verkalýðsfélags Akraness með því að afturkalla samningsumboð
sitt.
Þegar hefur verið boðað til fyrsta samningafundarins, en á morgun verður fundað með Bændasamtökum Íslands vegna
landbúnaðarverkamanna. Þá verður óskað eftir fundi með forsvarsmönnum Samtaka atvinnulífsins í næstu viku um
kjaraviðræður. Á fundinum var einnig tekin fyrir niðurstaða úr naflaskoðun félagsins sem fjallað er um annars staðar á
heimasíðunni. Þar kom fram að mikil ánægja væri með starfsemi félagsins og einnig komu þar fram ábendingar og hugmyndir sem
félagið mun vinna eftir. Þá var samþykkt að breyta lögum félagsins á þann veg að opna félagið enn frekar fyrir
félagsmönnum, enda mikil ásókn verið í félagið, segir í fréttatilkynningu.