Samkeppni um kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey
12. nóvember, 2013 - 16:31 Fréttir
Akureyrarbær, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, efnir til hugmyndasamkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey. Kennileitinu er ætlað að vekja athygli á Grímsey sem ferðamannastað. Verðlaunaféð er 1.000.000 kr. auk vsk. og verða veitt fyrir þá tillögu sem valin verður í fyrsta sæti. Samkeppnin er opin hönnuðum, arkitektum og myndlistamönnum. Skilafrestur gagna er til 31. janúar 2014. Leitað er að myndrænu tákni fyrir eyjuna sem gæti orðið að aðdráttarafli í sjálfu sér og hægt er að nota á ólíka vegu t.d. við gerð minjagripa. Kennileitið þarf að styrkja Grímsey og stöðu hennar sem nyrsta odda Íslands, á heimskautsbaugnum. Unnið verður með vinningshafa að frekari hönnun og útfærslu tillögunnar. Samkeppnin fer fram samkvæmt samkeppnislýsingu, fylgigögnum og samkeppnisreglum Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins í dag miðvikudag 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman.
Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti samhljóða á fundi ráðsins þann 27 ágúst s.l. að skora á ríkisstjórn og Alþingi að koma upp fastri starfsstöð fyrir þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Niðurstöðurnar vekja athygli á því að mæling yfir eina nótt gefur ekki alltaf nægilega góða mynd af alvarleika kæfisvefns hjá einstaka barni.
Fyrsti viðtalstími bæjarfulltrúa á Akureyri verður á Amtsbókasafninu á Akureyri 22. september 2026.
Í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar kemur fram það markmið að endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúa og efla samráð við íbúa og fyrirtæki.
Lagt er til í minnisblað um fyrirkomulag viðtalstíma bæjarfulltrúa að þeir verði haldnir fjórða þriðjudag hvers mánaðar frá klukkan 16:00 til 17:30 og a.m.k tveir bæjarfulltrúar verði til viðtals hverju sinni, einn frá meirihluta og einn frá minnihluta.
Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd.
Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti samhljóða á fundi sínum á fimmtudag að stefnt verði að því að endurbætur á stjórnsýsluhúsinu að Ketilsbraut 7–9 hefjist árið 2027.