Samkeppni um kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey
12. nóvember, 2013 - 16:31
Akureyrarbær, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, efnir til hugmyndasamkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey. Kennileitinu er ætlað að vekja athygli á Grímsey sem ferðamannastað. Verðlaunaféð er 1.000.000 kr. auk vsk. og verða veitt fyrir þá tillögu sem valin verður í fyrsta sæti. Samkeppnin er opin hönnuðum, arkitektum og myndlistamönnum. Skilafrestur gagna er til 31. janúar 2014. Leitað er að myndrænu tákni fyrir eyjuna sem gæti orðið að aðdráttarafli í sjálfu sér og hægt er að nota á ólíka vegu t.d. við gerð minjagripa. Kennileitið þarf að styrkja Grímsey og stöðu hennar sem nyrsta odda Íslands, á heimskautsbaugnum. Unnið verður með vinningshafa að frekari hönnun og útfærslu tillögunnar. Samkeppnin fer fram samkvæmt samkeppnislýsingu, fylgigögnum og samkeppnisreglum Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Endurminning - Lokatónleikar 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju Andrew J. Yang leikur úrval píanóverka og frumflytur nýtt verk úr eigin smiðju.
Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.
Vegna Mærudaga á Húsavík helgina 24.-26. júlí þarf að loka götum á hafnasvæðinu sem hér segir:
Frá föstudeginum 25. júlí kl. 12 til sunnudagsins 27. júlí kl. 7, á Hafnarstétt, frá Naustagarði að Fiskifjöru
Í tilkynningu sem lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér í nótt kemur fram að stúlkan sem leitað var í gærkvöldi og fram á nótt sé fundin heil á húfi.
Mærudagar hefjast formlega á morgun fimmtudag og eins og vant er verður margt spennandi í boði og ér óhætt að fullyrða að allir ættu að getað fundið eitthvað fyrir sinn snúð
Eins og fólki er kunnugt fer Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fram á Akureyri um verslunarmannahelgina og þá er einnig á dagskrá fjallahlaupið Súlur Vertical sem verður fjölmennara ár frá ári.
Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum hjá þeim aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi.