Samið við Eyrarland um upptöku bæjarstjórnarfunda

Lagt er til að samið verði við fyrirtækið Eyrarland um upptökur á fundum bæjarstjórnar Akureyrar út …
Lagt er til að samið verði við fyrirtækið Eyrarland um upptökur á fundum bæjarstjórnar Akureyrar út árið 2024. Mynd MÞÞ

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að taka tilboði Eyrarlands auglýsingastofu um upptökur á fundum bæjarstjórnar.

Akureyrarbær auglýsti verðkönnun á upptökum fundanna fyrir tímabilið september 2022 til og með desember 2024 í ágúst síðastliðnum. Þrír aðilar óskuðu eftir því að frá verk- og kröfulýsingu, en tvö tilboð bárust. Lægra tilboðið var frá Eyrarlandi auglýsingastofu, 130 þúsund krónur á hvern fund. Hitt tilboðið var frá N4, 182.800 fyrir hvern fund. Í verkinu felst upptaka á hljóði og mynd, öll eftirvinnsla og miðlun á vef.

Samkvæmt verk- og kröfulýsingu gilti tilboðsfjárhæð 50% og fagleg geta og reynsla 50% við mat á tilboðum. Báðir tilboðsgjafar hafa reynslu af upptöku funda bæjarstjórnar Akureyrar og í störfum sínum fyrir Akureyrarbæ sýnt fram á mikla faglega hæfni og getu.

 Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Eyrarland auglýsingastofu um upptöku bæjarstjórnarfunda út árið 2024 og að gert sé ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun 2023 og 2024. Árlegur kostnaður við þetta verkefni er 3.224.000 með virðisaukaskatti.


Athugasemdir

Nýjast