Samið um norsk-íslenska síld á fundi strandríkja

Á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem lauk í Lundúnum í dag, náðist samkomulag um að heildarafli verði 833.000 tonn árið 2012. Niðurstaða strandríkjanna er í fullu samræmi við vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og þá langtíma stjórnunaráætlun sem sett hefur verið. Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilt að veiða 120.868 tonn á árinu 2012.
Staða stofnsins er góð og stofninn hefur verið nýttur á sjálfbæran hátt undanfarin ár. Árgangar undanfarinna sex ára hafa þó verið minni en á tímabilinu 1998 til 2004 þegar sterkir árgangar komu inn í stofninn. Áður samþykkt stjórnunaráætlun og stofnstærðarmat ICES gefur heildarafla upp á 833.000 tonn en það er 16% lækkun milli ára. Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kristján Freyr Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en auk hans var sendinefndin skipuð þeim Þorsteini Sigurðssyni frá Hafrannsóknastofnuninni og Kristjáni Þórarinssyni frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.