SA vann fyrsta leikinn

Skautafélag Akureyrar lagði Björninn 3:0 að velli í Skautahöll Akureyrar í kvöld í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna. Þar með hafa hafa norðanstúlkur tekið 1:0 forystu í einvígi liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Mörk SA í kvöld skoruðu þær Hrund Thorlacius, Sarah Smiley og Birna Baldursdóttir.

Nýjast