"Einstaka þingmenn Samfylkingarinnar hafa komið fram á undanförnum dögum og sagt nauðsynlegt að skrifa nýtt frumvarp, þannig að í mínum huga er alveg ljóst að greinin mun búa við áframhaldandi óvissu með tilheyrandi afleiðingum."
Kristján segir athyglisvert að allar umsagnir um frumvarpið séu neikvæðar, varað sé við neikvæðum afleiðingum verði frumvarpið að lögum. „Ríkisstjórnarsamstarfið er gjörsamlega óútreiknanlegt, þannig að það veit enginn í dag hver lendingin verður í þessu stóra hagsmunamáli, því miður. Hugsanlega lítur dagsins ljós nýtt frumvarp í haust, sjónarmið ríkisstjórnarflokkanna eru ólík og innan hvors flokks um sig eru einnig fullkomlega andstæð sjónarmið. Miðað við umræðuna um sjávarútveginn á undanförnum árum átti maður svo sem von á öllu, málflutningur Samfylkingarinnar hefur frekar einkennst af upphrópunum en gagngerum tillögum sem unnt hefur verið að skapa sátt um."
Kristján Þór bendir á að sjávarútvegur gegni víðast hvar lykilhlutverki í atvinnulífinu í Norðausturkjördæmi. „Þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í kjördæminu verða að gera fólkinu í kjördæminu grein fyrir því hvers vegna þeir greiddu fyrir framgangi stóra frumvarpsins, sem nú er komið til umsagnar í þinginu. Þeir virðast vera á öðru máli en allir þeir sérfræðingar sem ályktað hafa um afleiðingar frumvarpsins, auk fjölda launþegasamtaka, hagsmunasamtaka og sveitarfélaga."
Kristján segir að full ástæða sé til að ræða ákvæði laganna um veiðiskyldu, framsal veiðiheimilda og veðsetningu, svo dæmi sé tekið. Greininni sjálfri sé hins vegar best treystandi í þessum efnum, þannig skili hún sem mestu til þjóðarbúsins. „Við erum ekki aðeins að tala um sjálf útgerðarfyrirtækin, heldur sjómenn, fyrirtæki í landi, sveitarfélög og þjóðarbúið allt. Það er himinn og haf á milli stjórnarflokkanna í fiskveiðimálum og jafnvel eru sjónarmiðin í hvorum flokknum jafn mörg og sjálfir þingmennirnir. Núna tala sumir þeirra um að aðrar leiðir eigi að gilda en hagfræðileg rök. Þjóðarbúið má hreinlega ekki við svona æfingum, en því miður er staðan svona. Áherslur einstakra stjórnarþingmanna benda til þess að ruglandinn og óvissan vari lengur, sem auðvitað stórskaðar atvinnulíf þjóðarinnar."