Ríkið kaupir Hótel Gíg

Hótel Gígur.
Hótel Gígur.

Ríkissjóður hefur gengið frá kaupum á fasteigninni Hótel Gíg á Skútustöðum í Mývatnssveit. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að með því sé fengin niðurstaða um framtíðaraðstöðu fyrir meginstarfsstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á NA landi og starfsaðstöðu annarra stofnana umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í Mývatnssveit, sem eru Umhverfisstofnun, Landgræðslan og Rannsóknastöðin við Mývatn (Ramý).

Undirbúningur þessa hefur staðið um hríð, meðal annars í nánu samstarfi við sveitarfélagið Skútustaðahrepp. Það var niðurstaðan að kaup á eldra húsnæði og endurbætur þess væri hagstæður kostur fyrir ríkissjóð og skapaði fjölmörg tækifæri í Mývatnssveit. Þetta hús, sem áður hýsti Skútustaðaskóla, stendur á einstökum útsýnisstað við Mývatn. Byggingin hentar vel sem ein af meginstarfsstöðvum Vatnajökulsþjóðgarðs og Hálendisþjóðgarðs, verði frumvarp um hann að lögum. Gestastofu og sýningum í tengslum við þjóðgarðinn og verndarsvæði Mývatns og Laxár er þannig fundinn varanlegur staður í Mývatnssveit.

-epe


Athugasemdir

Nýjast