Þriðjudaginn 28. október kl. 17:00 heldur leikstjórinn Jón Gunnar Þórðarson fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Rannsóknarvinna leikstjórans. Þar fjallar hann um rannsóknarvinnuna er liggur að baki þremur sýningum sem hann hefur sett upp; Lilju, Djáknanum og Makbeð. Vinnan fólst m.a. í rannsókn á óhugnanlegum heimi mansals, leitinni að djáknanum og þeirri spurningu hvort hægt sé að rekja ættir Akureyringa til skoska konungsins Makbeð. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá fimmti í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarrafyrirlesara vetrarins eru Aðalsteinn Þórsson, Stefán Boulter, Rósa Júlíusdóttir, Giorgio Baruchello og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
Jón Gunnar útskrifaðist með BA í leikstjórn frá Drama Center í London árið 2006. Hann hefur unnið sem atvinnuleikstjóri á Íslandi, í Englandi ogFinnlandi. Hann hefur einnig unnið sem aðstoðarleikstjóri í The Royal Shakespeare Company og hjá Vesturporti. Jón Gunnar hefur haldið fjölda námskeiða, leikstýrt áhugaleikfélögum ogstjórnað Götuleikhúsinu í Reykjavík.
Unnur segir verðlaunin hafa gríðarlega þýðingu fyrir fjölskyldufyrirtækið og sé staðfesting á því að það borgi sig búa sér til sína eigin gæðastaðla og halda sig við þá.
Á undanförnum árum hefur vart liðið sá dagur í mínu lífi að ég setji ekki niður einhverjar hugleiðingar um sögu sjómanna, sögu útgerðar og nauðsyn þess að varðveita þessu merku sögu í mannkynssögu okkar Akureyringa.
„ Ég er þakklát fyrir traust Sjálfstæðisfólks í Norðurþingi til að leiða lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi og ég hlakka til samstarfsins við þennan öfluga hóp sem skipar listann...
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK) gegnir lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustu Norðurlands. Innan vébanda þess starfar Kristnesspítali, sem um áratugaskeið hefur verið hornsteinn sérhæfðrar endurhæfingar í landshlutanum. Þar hefur skapast þekking og samfella í faglegu umhverfi sem skiptir sköpum fyrir einstaklinga sem þurfa á markvissri endurhæfingu að halda svo þeir geti aftur orðið virkir einstaklingar í samfélaginu.
Í undanfarin átta ár hefur Hörður Óskarsson, brautarstjóri á málmiðnbraut VMA, lagt Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis ómælt fjárhagslegt lið. Hann hefur látið hluta af andvirði þeirra hringa og annarra skrautmuna sem hann býr til úr gömlum íslenskum myntpeningum renna til Krabbameinsfélagsins. Þetta gerir Hörður fyrst og fremst til að styðja við mikilvægt starf félagsins og um leið að minnast Sigurðar Viðars Óskarssonar bróður síns sem lést langt um aldur fram úr krabbameini. Hann var jarðsunginn á 50 ára afmælisdeginum sínum, 25. nóvember 2010.
Nemendur Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit tóku þátt í verkefninu Bókmenntahátíð barnanna í desember á liðnu ári. Þetta var samvinnuverkefni milli fjögurra skóla á Norðurlandi; Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Valsárskóla á Svalbarðseyri, Reykjahlíðarskóla og Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit.
Símtalið
Á milli jóla og nýárs hringir kær vinkona í mig til að óska mér til hamingju með brúðkaupsafmælið og spyr hvort það sé ekki örugglega þennan sama dag, 28. desember. Ég verð smá vandræðaleg segist réttilega aldrei muna hvort sé 27. eða 28. d...
Oft á tíðum er talað um það að versla í heimabyggð. Það er oft tengt því þegar einhver heimamaður opnar búð eða þjónustu og vill þannig höfða til heimamanna að standa með sér í baráttunni.
Verslun í heimabyggð er mjög mikilvæg. Hún eflir atvinnulífi...
Stofnfundur nýrrar, sameinaðrar félagsdeildar Norræna félagsins á Norðurlandi var haldinn þann í Zontahúsinu á Akureyri nýlega. Á fundinum voru Norrænu félögin á Ólafsfirði, Siglufirði og Akureyri sameinuð og nær áhrifasvæði nýs félags nú yfir Norðurland allt.