Ragnheiður Skúladóttir ráðin leikhússtjóri LA

Ragnheiður Skúladóttir
Ragnheiður Skúladóttir

Starfsmönnum  Leikfélags Akureyrar var í dag tilkynnt að stjórn LA hefði ráðið Ragnheiði Skúladóttur í starf leikhússtjóra félagsins næstu tvö leikár. Ragnheiður Skúladóttir tók við listrænni stjórn LA á erfiðum tímum og hefur ásamt samstarfsfólki sínu náð að lyfta grettistaki á skömmum tíma. Stjórnin telur því að hún sé rétti aðilinn til þess að leiða endurreisn Leikfélags Akureyrar.

Stjórn LA stendur einhuga að þessari ákvörðun þótt í lögum félagsins segi að leikhússtjóri skuli ráðinn að undangenginni auglýsingu til þriggja ára. Nú á sér stað umræða um hugsanlegt aukið samstarf menningarstofnana á Akureyri sem geta falið í sér breytinar á starfsemi LA og þar með á starfi leikhússtjóra. Því þótti stjórninni þetta frávik frá lögum félagsins réttlætanlegt og óráðlegt í ljósi aðstæðna að ráða leikhússtjóra til lengri tíma en tveggja ára. 

Ragnheiður mun hefjast handa við að undirbúa 40 ára afmælisár Leikfélags Akureyrar  atvinnuleikhúss sem hefst á næsta leikári.  Ragnheiður er með M.F.A gráðu í leiklist frá University of Minnesota og var deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands um árabil. Hún hefur á fjölbreyttum starfsferli aflað sér víðtækrar þekkingar á straumum og stefnum í sviðslistum innanlands og erlendis.

Áherslur LA undir stjórn Ragnheiðar verða að stuðla að aukinni samvinnu á milli menningarstofnanna, atvinnuleikhópa sem og áhugaleikhópa. Efla alþjóðlegt  samstarf í gegnum tengslanet, vinnustofur og gestasýningar.  Ásamt því að renna styrkari stoðum undir fjárhag félagsins og skapa frjótt og skapandi starfsumhverfi innan leikhússins, segir í tilkynningu frá stjórn Leikfélags Akureyrar.

Nýjast