Rafhjól notuð í heimahjúkrun

Mynd: HSN
Mynd: HSN

Nýverið voru þrjú ný rafhjól keypt hjá HSN sem notuð verða í heimahjúkrun á Siglufirði og á Akureyri. Fyrir hafa verið í notkun rafhjól og rafhlaupahjól á Dalvík og rafhlaupahjól á Ólafsfirði. Greint er frá þessu á heimasíðu HSN.

„Starfsfólk HSN hefur verið afar ánægt með rafhjólin og er á döfinni að fjölga hjólum enn frekar. Rafhjólin hafa jákvæð umhverfisáhrif og koma til með að lækka eldsneytiskostnað,“ segir í tilkynningunni.


Athugasemdir

Nýjast