03. desember, 2010 - 15:22
Fréttir
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði í vikunni til fundar með forsvarsmönnum banka og bænda um
skuldamál í landbúnaði. Á fundinum var rætt um stöðu þeirra bænda sem lent hafa í skuldavandræðum eftir bankahrun,
greiðsluaðlögun bankanna og þá stöðu sem
er uppi í málefnum landbúnaðar.
Þá voru málefni bænda á gossvæðinu við Eyjafjallajökul rædd sérstaklega og lagði ráðherra áherslu á
að við úrlausn allra þessara mála væri horft til byggðasjónarmiða og þeirra markmiða að halda sveitum í byggð. Í
framhaldi af fundinum mun ráðuneytið kalla eftir upplýsingum um fjölda bænda sem eru í skuldavanda og um frystingar lána.