Ráðstefnu um jarðskjálfta á Húsvík lokið

Skipulagsnefndin: Benedikt Halldórsson, Ragnar Stefánsson, Páll Einarsson og Sigurjón Jónsson. Myndi…
Skipulagsnefndin: Benedikt Halldórsson, Ragnar Stefánsson, Páll Einarsson og Sigurjón Jónsson. Myndin er af Facebooksíðu Þekkingarnets Þingeyinga

Um 80 manns sóttu í síðustu viku ráðstefnuna Jarðskjálftar á Norðurlandi. Ráðstefnan er samstarfsverkefni vísindamanna undir forystu Dr. Ragnars Stefánssonar og Þekkingarnets Þingeyinga.

Þetta var í annað skipti sem ráðstefnan er haldin og voru þátttakendur um 20 fleiri en á fyrstu ráðstefnunni. Þá vakti mikill fjöldi erlendra gesta athygli en 34 erlendir vísindamenn sóttu ráðstefnuna. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar voru jarðskjálftar á Norðurlandi og var málefni skoðað frá ýmsum hliðum, allt frá hreyfingum á brotabeltum og sprungum til félagshagfræðilegra afleiðinga jarðskjálfta. Þá var fjallað um undirlag á byggingasvæðum á Húsavík og hlutverk almannavarna þegar jarðskjálftar verða.

Í tengslum við ráðstefnuna var haldinn opinn fundur  þar sem íbúar á Norðurlandi, starfsfólk stjórnsýslunnar og sérfræðingar á sviði jarðvísinda hittist og ræddi um jarðskjálfta, viðbrögð við jarðskjálftum og viðlagatryggingar. Sá fundur var vel sóttur, en alls voru um 40 manns á fundinum.

 

Nýjast